TERMDIST - norrænt nám í íðorðastjórnun
Haustið 2009 verður í fyrsta sinn boðið upp á samnorrænt fjarnám í íðorðastjórnun. Námskeiðið er meðal annars hugsað fyrir þýðendur, þá sem starfa við þekkingar- og upplýsingamiðlun, þá sem vinna við skjalavinnslu og skjalavörslu en einnig fyrir sérfræðinga í ýmsum greinum sem hafa áhuga á markvissri orðræðu.
- Íðorðafræði fæst ekki eing
öngu við „erfið orð“ heldur einnig markvissa sérfræðilega orðræðu. Í nútímasamfélagi hefur íðorðafræði og starfsaðferðir hennar mikla þýðingu fyrir þá sem þýða sérfræðitexta og þá sem vinna við þekkingar- og upplýsingamiðlun. Í sífellt fleiri tilvikum er gerð krafa um íðorðafræðilega kunnáttu við gerð orðalista, í sérfræðilegri umræðu, í verslunarviðskiptum milli landa, við gerð og vistun skjala og í þróun upplýsingakerfa til að tryggja samkeyrslu og gæði gagnanna. Hér er þekking á íðorðafræði mikilvægt hjálpartæki.
Inntak námskeiðsins
Það mikilvægasta, sem nemendur læra í náminu, er að nota meginreglur og aðferðir í íðorðafræði í vinnu sinni með upplýsingar og afmörkun hugtaka. Þetta merkir í raun að nemendur þjálfast í að greina hugtök og skipa þeim í kerfi, að þekkja og meta íðorð í textum og skrifa og meta skilgreiningar og greina texta íðorðafræðilega.
Í námskeiðinu er gengið út frá ISO-stöðlum í íðorðavinnu. Að lokum fá nemendur að kynnast viðfangsefnum þar sem íðorðafræði skiptir máli allt frá innlendum viðfangsefnum til samnorrænna eða hnattrænna. Þau dæmi og æfingar, sem notuð eru í náminu, eru raunveruleg.
Námskeiðið er 7,5 ECTS (mögulegt er að stækka það í 10 ECTS með aukaverkefnum) og stendur yfir í 11 vikur (vikur 40–50) haustið 2009.
Námið er fyrsti hluti af fyrirhuguðu samnorrænu starfstengdu meistaranámi í íðorðastjórnun.
Sveigjanlegt kennslufyrirkomulag
Kennslufyrirkomulagið á netinu veitir nemendum mikinn sveigjanleika. Nemendur geta hvenær sem er sótt kennsluefnið í námsumhverfinu It´s learning, rætt við samstúdenta, skilað verkefnum og komist í samband við kennarana. Ýmist er kennt á dönsku, norsku eða sænsku.
Forkröfur
Gerð er krafa um að nemendur hafi a.m.k. lokið BA-prófi eða sambærilegu námi.
Verð
Verðið fer eftir reglum þeirra stofnana sem standa að náminu.
Hverjir standa fyrir náminu?
Norrænir íðorðafræðingar með víðtæka reynslu af kennslu, rannsóknum og af hagnýtu íðorðastarfi hafa skipulagt þetta nám. Kennarar á námskeiðinu tengjast eftirfarandi stofnunum og íðorðamiðstöðvum:
- Syddansk Universitet, Kolding
- Copenhagen Business School, Kaupmannahöfn
- Norges Handelshøyskole, Bergen
- Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
- Terminologicentrum TNC, Stokkhólmi
- Vasa universitet

